- Frí sending á pöntunum yfir 10.000
- Frítt að skipta/skila
- Umhverfisvænar vörur
- Öruggar greiðsluleiðir
- Takmarkað magn - 3 til á lager
- Inventory on the way
Husum EP
Einn vinsælasti skórinn frá Kavat, sterkur og töff Chelsea skór fyrir stærri börnin. Hann er gerður úr umhverfisvænu og vatnsheldu Eco Performance leðri, laus við króm. Húðin andar ótrúlega vel og aðlagar sig fætinum vel. Teygja er að utanverðu og hagnýtur rennilás að innanverðu gerir það auðvelt að fara í hann og úr. Sniðið er vandlega prófað og passar fullkomlega að flestum fótum. Skórinn er leðurfóðraður og styrktur bæði í tá og hæl. Fjarlægjanlegt innlegg er í skónum með höggdeyfi til að auka þægindi. Gúmmí sóli með góðu gripi. Vottaður með umhverfismerki ESB og eins og allir Kavat skór eru þeir án PVC, Teflon, PTFE og öðrum flúoríð vetniskolefnum.
Mælum með Kavat Eco Wax til að bera á skóna
https://www.ethic.is/collections/kavat/products/kavat-eco-wax
Stærðartafla:
Fullkomnir fyrir krakkana
Ég, fullorðin og nota skó 39, keypti þessa í 39 fyrir um ári. Hef notað þá mjög mikið og er alltaf jafn ánægð með þá. Þeir eru svolítið þröngir í þykkum sokkum en ég tók innleggið úr og fékk aðeins meira pláss þannig. Þeir eru þokkalega vatnsheldir, sólinn er stamur og bara allt gott við þá.
Flottir
Husum EP dökkbrúnn
Snögg afgreiðsla og góð þjónusta, gott að geta fengið bestu skóna senda í pósti og ekkert vesen :) Líka gaman að skoða vörurnar í POP UP-verslun í Hofi þegar það er í boði!